Ephesians 6

1Þér börn, hlýðið foreldrum yðar vegna Drottins, því að það er rétt. 2,,Heiðra föður þinn og móður,`` _ það er hið fyrsta boðorð með fyrirheiti: 3,,til þess að þér vegni vel og þú verðir langlífur á jörðinni.`` 4Og þér feður, reitið ekki börn yðar til reiði, heldur alið þau upp með aga og umvöndun Drottins. 5Þér þrælar, hlýðið yðar jarðnesku herrum með lotningu og ótta, í einlægni hjartans, eins og það væri Kristur. 6Ekki með augnaþjónustu, eins og þeir er mönnum vilja þóknast, heldur eins og þjónar Krists, er gjöra vilja Guðs af heilum huga. 7Veitið þjónustu yðar af fúsu geði, eins og Drottinn ætti í hlut og ekki menn. 8Þér vitið og sjálfir, að sérhver mun fá aftur af Drottni það góða, sem hann gjörir, hvort sem hann er þræll eða frjáls maður. 9Og þér, sem eigið þræla, breytið eins við þá. Hættið að ógna þeim. Þér vitið, að þeir eiga í himnunum sama Drottin og þér og hjá honum er ekkert manngreinarálit. 10Að lokum: Styrkist nú í Drottni og í krafti máttar hans. 11Klæðist alvæpni Guðs, til þess að þér getið staðist vélabrögð djöfulsins. 12Því að baráttan, sem vér eigum í, er ekki við menn af holdi og blóði, heldur við tignirnar og völdin, við heimsdrottna þessa myrkurs, við andaverur vonskunnar í himingeimnum. 13Takið því alvæpni Guðs, til þess að þér getið veitt mótstöðu á hinum vonda degi og haldið velli, þegar þér hafið sigrað allt. 14Standið því gyrtir sannleika um lendar yðar og klæddir brynju réttlætisins 15og skóaðir á fótunum með fúsleik til að flytja fagnaðarboðskap friðarins. 16Takið umfram allt skjöld trúarinnar, sem þér getið slökkt með öll hin eldlegu skeyti hins vonda. 17Takið við hjálmi hjálpræðisins og sverði andans, sem er Guðs orð. 18Gjörið það með bæn og beiðni og biðjið á hverri tíð í anda. Verið því árvakrir og staðfastir í bæn fyrir öllum heilögum. 19Biðjið fyrir mér, að mér verði gefin orð að mæla, þá er ég lýk upp munni mínum, til þess að ég kunngjöri með djörfung leyndardóm fagnaðarerindisins. 20Þess boðberi er ég í fjötrum mínum. Biðjið, að ég geti flutt það með djörfung, eins og mér ber að tala. 21En til þess að þér fáið einnig að vita um hagi mína, hvernig mér líður, þá mun Týkíkus, minn elskaði bróðir og trúi aðstoðarmaður í þjónustu Drottins, skýra yður frá öllu. 22Ég sendi hann til yðar einkum í því skyni, að þér fáið að vita, hvernig oss líður, og til þess að hann uppörvi yður. 23Friður sé með bræðrunum og kærleikur, samfara trú frá Guði föður og Drottni Jesú Kristi.
Copyright information for Icelandic